Leikjadjamm Húsavík
17-18 apríl 2026 - Hraðið miðstöð nýsköpunar á Húsavík
Langar þig að búa til leik? Langar þig að kynnast leikjahönnun? Langar þig að kynnast öðrum sem hafa áhuga á leikjagerð?
Ertu 15–25 ára og forvitin um leikjagerð, nýsköpun eða hvernig leikjavæðing getur nýst í alls konar hugmyndavinnu?

Hvað ætlum við að gera
Á leikjadjammi safnast fólk saman úr ýmsum áttum og býr saman til leik eða leikjaupplifun frá grunni. Fólk mætir saman eða kynnist á staðnum, fær hugmyndir og framkvæmir hana svo á tveimur dögum.
Það þarf reynslu úr öllum áttum til að búa til leiki. Fólk með skapandi hugsun, rithöfundar, teiknarar, grafískir hönnuðir, tónlistarfólk og forritarar vinna saman.
Saman gerið þið tölvuleiki, borðspil og jafnvel útileiki!
Það geta allir búið til leiki, líka þú! Við hjálpum ykkur af stað og gefum ykkur ráð um hversu stór hugmyndin getur verið til að þið náið að sýna hana í lok laugardags.





